Lítil stelpa- stórar hugsanir

31.01.2008 19:06:41 / hjordislitla

You see me, love me, Just the way I am...

Jæja... Ég ætlaði bara rétt að láta vita að ég er ennþá á lífi!

Heill hellingur að gera hjá mér og eiginlega meira en það!

Einnig er helling að frétta af mér! En tíminn til að blogga er samt sem áðru naumur... Ég ætla að blogga seinna og segja ykkur hinar og þessar fréttir!

Ég ætla samt að segja frá því að ég er að fara að sækja Önnu mína á morgun!!! Ég get varla beðið! Ég er að farast úr spenningi!!! Hún er best:* Dagný kemur að sjálfsögðu með okkur:*

En ég verð að þjóta... Hafið það gott og munið að koma vel fram við allt og alla, þá gengur allt miklu betur:*

Elska ykkur öll:*

Hjördís Arnarsdóttir=)

P.S: Jói minn, Til hamingju með afmælið!!! :* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 01:50:52 / hjordislitla

óhrein/-nn?!? Þá er ég með lausnina:D

hæhæ allir.

Ég er að fara til Prag á alþjóðlegt mót í ágúst... Og ég er því að taka þátt í fjáröflun!

Er núna fram á sunnudag að selja það sem að mun koma hérna fram á eftir. Ýmislegir sniðugir pakkar og fleirra svo að nú er um að gera að athuga hvort að það vannti ekki svona á heimilið og kaupa svo af mér. Frábært tækifæri! Allir að spyrja mömmu og pabba, ömmu og afa og frænku og frænda og allt:D Ef að þið viljið einhverjar meiri upplýsingar en eru hérna þá bara endilega hafið samband hérna eða í e-mailið mitt (hjordis(hja)internet.is) eða í símann minn: 694-8376

Panntanir þurfa að vera komnar til skila til mín um hádegi á sunnudaginn. Það er semsagt ekki mikill umhugsunarfrestur svo að endilega gríptu tækifærið og nýttu þér þetta frábæra tilboð!

Það sem að ég er með til sölu er:

 

WC pappír hvítur, 2 laga, 48 rúllur = 2300 kr

WC pappír hvítur, 2 laga, 64 rúllu = 2500 kr

Eldhúsrúllur hvítar, 2 laga, 20 rúllur = 2200 kr

Persil Þvottaduft, 8 kg = 2500 kr

 

Persónulegi pakkinn   = 2000 kr

Neutral handsápu með dælu, 300 ml

DAX handáburður, 250 ml

Neutral sjampó, 200 ml

Neutral hárnæring, 200 ml

Á aðeins 2000 kr

 

Eldhúspakkinn    = 2000 kr

RV uppþvottalögur 1l

H- uppþvottabursti, gulur

Gúmmíhanskar, gulir, M

Unique örtrefjaklútar, 32*33, 2 blá+rauð

 

Pokapakkinn    = 1800 kr

Nestispokar, 21*35, 35 stk

Nestispokar, 80*30, 35 stk

Heimilispokar, 38*45, 30 stk

Gráir ruslapokar með höldum, 25 stk

Svartir ruslapokar, 70*110, 10 stk

 

WC pakkinn    = 2300 kr

WC ilmur Tomik Citrus

Kristalin hreinsir, 1l

Klósetthreinsir- Into WC forte, 750 ml

3M svmapur Melamin, 2 stk

 

Alhliðahreinsipakkinn   =1500 kr

Alhreinsirö Brial shine, 1l

Unique örtrefjaklútur + glerklútur

 

 

Þið eruð best, og verðið ennþá betri ef að þið hjálpið mér að selja=)

Elska ykkur öll:* 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 21:50:12 / hjordislitla

I'm unwritten... can't read my mind...

Jói var eitthvað að reka á eftir mér að blogga hérna... svo að það er best að henda inn smá færslu hérna.

Akkurat núna er ég lasin, enn og aftur, með gölluð augu og dauðþreytt:P svo að ekki láta ykkur bregða ef að það kemur aðeins bull hérna:D

Ég fór á nýársnámskeið sem var æði... fékk þar þessa kreisýness augnsýkingu sem er ekki sniðugt og var send í bæinn til læknis á sunnudeginum áður en allir fóru heim. Fékk þessa yndælu augndropa sem að ég notaði villt og galið í 6 daga.

Ég fékk stundatöflu á mánudaginn og lagfærði hana á miðvikudaginn og byrjaði svo í skólanum á fimmtudaginn. Ég er með 21 einingu, allt bóklegt nema íþróttir. Og í þokkabót allt lesmikil fög. En þetta vil ég og ég er sátt=) Verður bara kreisý að gera í skólanum! :D

Síðan er voðalega fátt að frétta af mér. Er að spá í að fara til eyja næstu helgi. Mig langar amk hrillilega mikið til að fara en þar sem að það eru fáir að fara sem að ég þekki þá veit ég ekki hvort ég fari. Semsagt ef að þig langar til eyja næstu helgi, talaðu þá við mig í dag eða á morgun svo að það sé hægt að skrá þig:D

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili. Endilega hafið það gott sæta fólk og passið ykkur á að verða ekki lasið! Ég elska ykkur öll:* Guð geymi ykkur=* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 21:13:40 / hjordislitla

Gleðilegt Nýtt Ár=*

Ég ákvað að búa til eitt stykki áramóta-blogg þar sem að mér leiddist smá=) Endilega lesið og njótið þess að lesa um hvað ég afrekaði á þessu ári=) 

Janúar: Ég vann á stofunni í mánuðnum.... Lítið að gera eins og gengur og gerist á stofum í janúar. Fór á gjörsamlega ógleymanlegt nýársnámskeið í Ölver. Það var svo skemmtilegt að ég mun líklega aldrei gleyma því og margt brallað þar sem verður líklegast aldrei endurtekið. Síðan var afmæli hjá Jóa í lok mánaðarins. Það var svo mikil snilld og mun seint gleymast.

Febrúar: Ég vann á stofunni þennan mánuð og seinasti dagurinn minn var þann 28. Febrúar. Fékk svona skemmtileg ofnæmi og fleirra í þessum mánuði. Man eftir voðalega fáu sem að gerðist í þessum mánuði fyrir utan vinnuna og náttla örugglega endalaust af rúnntum með Jóa og Aroni:P

Mars: Hætt á stofunni. Árshátíð KSS var haldin og ég skemmti mér allveg svakalega vel. Partýið var einnig mjög svo skemmtilegt. Í byrjun mars sendi ég eitt e-mail til Danmerkur sem gerði það að verkum að 14 dögum síðar þá flutti ég þangað. Það var farin ógleymanleg ferð á pizza hut til hennar Dagnýjar. Ég hélt síðan að sjálfsögðu kveðjupartý áður en ég fór út sem heppnaðist bara mjög svo vel. Það var erfitt að kveðja alla en þetta var samt ein besta ferð lífs míns. Fór út 21. Mars rétt eftir að pabbi varð 45 ára sem var 19. Mars. Ég flaug til Köben en var sótt á flugvöllinn og það var þotið strax til Ullerslev þar sem að ég bjó svo næstu tæpu 4 mánuði. Kynntist yndislegri fjölskyldu og passaði yndisleg börn.

Apríl: Fór til köben og hitti ömmu og afa og Sigga og eyddi helgi með þeim. Síðan fór ég um páskana til Önnu Karenar minnar. Eyddi helginni með henni, Sveinka og fjölskyldunni hennar Önnu. Fórum meðal annars í lego land og svona. Annars var þess bara notið í Ullerslev og eitthvað kíkt til Odense til Evu frænku og fjölskyldunnar hennar þar.

Maí: Fór aðalega í það að vera í Ulllerslev að passa og njóta lífsins. Og auðvitað sakna allra á Íslandi.

Júní: Byrjaði á því að fara til Mallorca með fjölskyldunni „minni“ og vera þar í viku með næstum allri fjölskyldunni hans Þórs. Það var yndislegt. Komum samt síðan til Danmerkur aftur í eiginlega bara betra veður og þannig. Það var allavega ekki mikið kvartað. 15 til 17 júní fór ég svo á 17. Júní hátíð með Önnu, Sveini Vali og fjölskyldunni hennar Önnu minnar. Það var ótrúlega skemmtilegt og mikil upplifun að fara í útilegu í Danmörku, þrátt fyrir að ég hafi bara sofið eina nótt í tjaldi og hina nóttina í bíl:P Svo komu mamma, Berglind og Skorri Steinn til Danmerkur og voru í Odense hjá Evu frænku og ég var auðvitað mest megnis með þeim þann tíma sem þær voru hérna. Síðan fóru þær aftur rétt fyrir mánaðarlokin.

Júlí: Það var hundleiðinlegt veður í lok júní og það hélt áfram í júlí. Þann 3. Júlí hinsvegar fór ég aftur heim til Íslands. Með mjög svo mikinn söknuð í brjósti en gleði líka. Það var gott að koma heim þó að það hefði líka verið gaman að vera áfram úti. Ég byrjaði að vinna strax daginn eftir að ég kom heim á leikjanámskeiðum KFUM og K eins og ég hafði áður gert. Þar vann ég út júlí og naut mín þar auk þess að hitta vini og vandamenn fyrir utan vinnu og þessháttar.

Ágúst: Ég vann á leikjanámskeiðunum fram að verslunarmannahelgi. Verslunarmannahelginni eyddi ég aðalega í bænum þó svo að maður hafi aðeins skroppið út á land í smá heimsókn. Restina af mánuðnum eyddi ég í frí og að redda hlutum sem ég þurfti að gera og fleirra. Síðan fór skólinn að byrja og þá var maður fyrst á fullu að kaupa fyrir hann en byrjaði svo í skólanum á fullu. Ég tók skólann með trompi í ár. Var með 20 einingar sem var mikið fyrir mig þar sem að það var langt síðan ég hafði eingöngu verið í bóklegu námi.

September: Skólinn tók nánast allan minn tíma. Það var þó skroppið á rúnntinn og að hitta vinina svona inn á milli. Ég tók einmmitt bílprófið líka í þessum mánuði og stóðst það auðvitað! Naut þess svo að keyra rauða (og þá græna) puegotinn minn.

Október: man eftir fáu fyrir utan skóla. Hilmar varð jú 20 ára og hélt upp á það með stæl. Ég skellti mér að sjálfsögðu og skemmti mér vel. Svo var það bara skóli og skól og skóli.

Nóvember: skóli og skóli og skóli og fullt af veikindum. Og svo varð ég auðvitað, ásamt Geirlaugi, 18 ára þann 30. Nóvember.Ég hélt að sjálfsögðu upp á það og gekk það líka svona svakalega vel! Ég veit allavega ekki um neinn sem að kom og skemmti sér ekki=)

Desember: Próf og próf og próf og öll sú vitleysa sem að fylgir þeim. Ekkert sofið í 2 vikur á meðan að prófin stóðu yfir og strax örfáum tímum eftir seinasta prófið var þetta tekið með stæl og ég byrjaði að keyra út jólapakka eins og mófó til fólksins í kópavogi þá aðalega en einnig í hafnarfirði, Garðabæ og Grafarvogi. Það var æðisleg vinna og ég var að vinna með fullt af skemmtilegu fólki og á geðveikum bíl:D Svo komu bara jólin sem að ég naut auðvitað í botn og svaf og borðaði og svaf. Svo voru áramótin í gær. Fyrst var kvöldinu eytt með familíunni og svo sótti Jói mig og við fórum hingað og þangað út um allan bæ og skemmtum okkur svakalega vel! Góður endir á góðu ári.

Ég hef ekki gert nein áramótaheit hingað til og ég ætla ekkert að breyta því. Ég ætla bara að segja það sama og vanalega. Þetta var gott ár, vinnum nú saman að því að gera næsta ár enn betra en 2007 var! Verði góð við allt og alla, þá gengur allt svo miklu betur.

Ég vil enda á að óska ykkur gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla. Þið eruð æði og best, ekki gleyma því=* Og takk allir sem hjálpuðu árinu mínu að heppnast svona vel=)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 13:24:16 / hjordislitla

Jólin, jólin, jólin koma brátt....

Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg fyrir ykkur.

Ég kláraði prófin og gengu þau bara ágætlega. Ég náði öllu nema ljótu spænskunni. Fyrsta skipti sem að ég fell í einhverju, en það verður bara að hafa það. Sárt var það að sjálfsögðu eftir alla vinnuna sem að ég lagði á mig. En... Fyrir utan það var ég samt með 7,3 ef ég man rétt í lokaeinkunn svo að ég var ágætlega sátt með hitt.

Eftir seinasta prófið byrjaði ég strax að vinna. Vann eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Keyrði út jólapakka á úber bílnum í hin og þessi hverfi. Fékk reyndar bara fyrst einhverja leiðinlega bíla sem að voru bara fyrir stórt fólk og einhver hverfi sem að ég rataði ekkert í og þess háttar. En svo fékk ég úber dúper bíl sem var svona frekar mjög mikið nýr og gott hverfi sem ég rata þá mjög vel um núna:P Þetta var góð vinna þó að það hafi að sjálfsögðu verið mikið stress og eitthvað í þá áttina:P

Svo kláruðust loksins eiginleg allir pakkarnir. Mikið var það þægilegt. Þá var maður búinn snemma og var sendur í kjánalegar ferðir eins og að sækja pakka inn á pósthústið í Garðabæ sem að áttu að fara á pósthúsið í Hafnarfirði og þessháttar*hóst*ogheimsóttiömmusínasmá*hóst* :lol:

Svo var auðvitað Þorláksmessa. þá vann ég bara til 15:30 eða eitthvað álíka. Svo fór ég heim og kláraði eitthvað af því sem að þurfti að klára fyrir jól og skellti mér svo niður í bæ með mömmu og pabba og sýndi mig og hitti aðra:P Svo var bara brunað upp í Friðrikskapellu þar sem að Þorláksmessustund fór fram eins og alltaf. Það var frábært, gekk bara held ég hjá okkur. Ég vona að allir hafi farið út sáttir allavega.

Svo komu jólin. Þau voru yndisleg. Berglind, Steini og Skorri Steinn voru hérna hjá mér, mömmu og pabba og það var frábært! Endalaust gaman að fylgjast með skorra steini opna pakkana. Hann er bestur. En ég fékk frábærar gjafir og er bara mjög sátt! Fékk einmitt iPod sem að mig er búið að langa í mjög lengi og er ýkt mikið sátt með hann. Og svo fékk ég gallabuxur og svo ýmislegt smádót.

Í gær var heitt súkkulaði hérna hjá okkur eins og alltaf. Seinna um daginn þá langaði mig svo mikið út í snjóinn svo að ég fékk Skorra Stein lánaðan og fór út með hann á stiga sleðanum mínum. Hann er svo fyndinn og hann er algjört yndi. Ég kenndi honum að kasta snjó, þá aðalega í pabba hans að sjálfsögðu, og fleirra.

Svo var bara matur hjá ömmu í gær og það er alltaf jafn gaman að fara þangað og hitta fólkið=) Og svo í kvöld verðum við hjá móðursystur minni. Þar fæ ég að sjá nýjasta frændann og máta hann smá. jeij. Langt síðan einhver hefur komið svona nýr í fjölskylduna held ég.

En ég ætla að hætta þessu bulli og fara að lesa eða gera eitthvað af viti. Ég ætla bara að óska öllum gleðilegra jóla og ég vona að þið hafið notið ykkar jafn vel og ég hef seinustu daga. Og njótið ykkar eins mikið og þið getið því sem eftir er af jólunum.

Ástar- og Jólakveðja,
Hjördís =*

 

Image and video hosting by TinyPic

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 02:28:38 / hjordislitla

Love is in the air...

Jæja. Ég ætla að blogga hérna örlítið fyrir ykkur. Get ekki sofið sökum ógeðslega mikils kvefs. Ég er semsagt komin með tvöfaldar kinnar og svona yndileglegheit.

Prófin mín eru hálfnuð, en það er eitt á morgun (í dag), eitt á fimmtudaginn og svo eitt á föstudaginn. Ég byrja síðan að vinna strax á föstudaginn. Er komin með snilldar vinnu við það að keyra út jólapakka. Hlakka mikið til þes:)

Ég hélt upp á afmælið mitt með opnu húsi um daginn og það heppnaðist bara vel. Ég skemmti mér mjög vel og þakka þeim sem að komu fyrir komuna og takk fyrir mig=* Þetta var yndislegt.

Síðan fór tíminn bara í lærdóm.

Síðasta föstudag fór ég á jólahlaðborð KFUM og K. Það var yndislegt kvöld. Ég naut mín í góðra vina hópi. Maturinn, amk það sem að ég mátti borða, var mjög gott:) Endaði síðan á að draga fólk með mér á miðnætur-samkomu í Krossinn og skutlaði Bigga svo heim þegar að við fórum þaðan.

Er búin að vera að reyna að læra þessa helgina annars en það hefur ekki gengið vel. Margt búið að liggja í hugsunum mínum og svo er þetta kvef ekkert það vinsælasta hjá mér meðan að ég er í þessum prófum. Skemmir bæði svefn og einbeitingu.

Annars langar mig svoldið til að deila nokkrum lagatextum með ykkur. Í vonda veðrinu áðan kveikti ég nefninlega á kertum, fór í náttföt og upp í rúm og lét notalega tónlist rúlla. Einhverra hluta vegna fjalla flest þessara laga um ást, ástarsorg eða eitthvað í þá áttina. Auðvitað getur maður túlkað sum lög á marga vegu. Kannski túlka ég þau flest núna á þessa vegu þar sem að þessi hlutur er mér ofarlega í huga þessa dagana.

Baby can I hold you- Ronan Keating. Þetta lag fjallar um ást. Það er erfitt að segja afsakið, það er erfitt að segja fyrirgefðu mér. En ef að ég myndi segja viltu halda utan um mig í kvöld, myndirðu þá verða mín. Að mínu mati er mikið til í þessu. En ég efast um að þetta virki svona.

Ástarfár- Land og synir. Þetta lag fjallar um að vilja einhvern sérstakan. Einhvern sem að hefur horfið frá einhverjum og sá vill ekki láta aðilann hverfa aftur.

Better Man- James Morrison. Þegar hann fékk þá einu sönnu varð hann að betri manni. Hann yrði týndur án hennar.

I don't want to miss a thing- Aerosmith. Þetta lag einhverra hluta vegna hvernig ég held að sönn ást lýsi sér. Þú vilt ekki sofa, þú vilt ekki gera neitt vegna þess að þú ert of hrædd/-ur við að missa af einhverju með þeim sem að þú elskar.

Every rose has its thornes- poison. Þetta lag segir þér að lífið, og hvað þá ástin, er ekki dans á rósum. Maður getur alltaf gert mistök. En maður verður að læra af þeim.

For the love- step up. Þetta lag segir frá því að þegar að maður var ekki búinn að kynnast ástinni sinni þá veit maður ekki hvernig maður á að komast að. Allt er erfitt. En um leið og maður finnur ástina þá breytist allt. Allt verður einhverra hluta vegna svo auðvelt.Þér finnst þú fullkomnaður vegna þess að þú elskar einhvern.

Goodbye my lover- James Blunt. Einhver er að kveðja ástvin sinn eftir næstum ævilanga ást. Hann er hræddur um að hafa ekki gert eitthvað rétt.

How sweet it is (to be loved by you)- James Taylor. Það er svo gott að vera elskaður af einhverjum. Þú þarft skjöld fyrir erfiðleikana, þig vanntar einhvern til að skilja þínar tilfinningar og svo framvegis... Og þarna var hann/hún... Til að skilja þig og elska þig. Og það er dásamlegt.

If tomorrow never comes- Ronan Keatin. Ef að morgundagurinn kemur aldrei, veistu þá að ég elska þig? Ég hef þetta allveg einhversstaðar í hugsunum mínum. Ég er rosalega hrædd um að missa einhvern sem að mér þykir vænt um. Þess vegna reyni ég alltaf að koma vel fram við alla og láta alla vita að mér þykir rosalega vænt um alla. Þið vitið það þá amk núna að ég elska ykkur öll!!!

You've got a friend- James Taylor. Þetta lag segir þér hvernig sönn vinátta er. Ég breytti textanum smá í sumar og skrifaði í kort sem að ég lét bestu vinkonu mína fá sem hluta af afmælisgjöf. Ég vona að ég sé þessi manneskja fyrir fleirri en hana eina. Hvenær sem er, allveg sama hvar, hvenær eða hvað er að, þá er ég til staðar.

Lost for words- Ronan Keating. Stundum er bara erfitt að finna réttu orðin við réttu aðstæðurnar. En það geta gjörðir vonandi sýnt það sem að er til staðar.

Maybe tomorrow- Stereophonics. Það hefur allt verið svo dimmt og erfitt. En kannski á morgun mun allt birta til. Kannski finn ég veginn heim á morgun.

The storm is over- R. Kelly. Einu sinni var allt dimmt, mikill stormur. En nú er því lokið. Storminum er lokið.

Second you sleep- Sabia. Ertu kannski bara að geyma ástina fyrir mig fyrir innan? Ég vaki og horfi á þig sofna og svo dreymir mig um þig. Á morgun, verðuru farin?

She's the one- Robbie Williams. Hún er sú eina rétta. Það er allt að segja mér það. Ég finn það á mér að við munum standast mótbaráttur. Því einhver er að segja mér að hún er sú rétta.

Somebody to love- Queen. Getur einhver fundið einhvern sem ég get elskað? Alla morgna sem að ég vakna dey ég smá, ég græt og mér líður illa. Ég reyni og reyni en ekkert gengur. Getur einhver fundið einhvern sem ég get elskað?

Someday- Nikelback. Einn dag mun ég gera allt rétt. Það þarftu að vita og þú ert sú eina sem að veist það.

When a man loves a women- Michael Bolton. Þegar maður elskar konu, þá kemst ekkert nema hún að. Hann hugsar um hana alltaf og gerir allt fyrir hana. Hann gerir allt fyrir hana. Þegar maður elskar konu lætur hann öll þægindi fara til að gefa henni allt sem að hann vill gefa henni. Hann reynir allt til að halda í hana.

With or without you- U2. Ég mun bíða og bíða og bíða eftir þér. Gefa allt. Því ég get ekki lifað... with or without you...

Þetta er aðeins brota brot af svona lögum... tók bara nokkur af handahófi....;)

En núna ætla ég að fara að reyna að sofa. Ég elska ykkur öll! Þið eruð æði, ekki gleyma því. Og ekki gleyma að þið eruð að sjálfsögðu fullkomin sköpun Guðs=) Guð blessi ykkur öll!  


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 16:20:30 / hjordislitla

You wanna give it a go, huh?!?

Jæja, ég ætla að henda inn smá bloggi hérna fyrir ykkur.

Mikið búið að vera að gerast. Ekkert bólar á því að þetta kvef mitt sé að fara... Er orðin frekar þreytt á því en það fer nú vonandi að hverfa á brott.

Mikið búið að vera að gera í skólanum en það er lægð núna svona áður en prófin byrja. Mér þykir það ekkert leiðinlegt enda mikið að gerast fyrir utan skólann þessa vikuna.

Ég skellti mér með KSS á Hvammstanga á föstudaginn og það var bara ýkt mega sega stuð:) Skemmtilegur hópur, skemmtilegur bílstjóri og fallegur staður. Gerist varla betra:) Ég er búin að skella myndum inn á myspaceið mitt svo að þið sem að eruð forvitin getið kíkt á þær þar:)

Ég skellti mér svo á KSS fund á laugardaginn og eftir fund lennti ég í stuttmyndatökum. Var að leika þar eitthvað og verð auðvitað heimsfræg á því:P ... En svo fór ég bara snemma heim að sofa:) Það var ágætt.

Fékk lokaeinkunn fyrir heimildaritgerð í gær og fékk þar 9,5. Er ekkert smá stollt af mér og svo ánægð! Fékk svo einnig einkunni í dag úr prófi í sögu sem að ég var svoldið mikið stressuð fyrir en ég fékk 7 þar svo að ég er sátt:)

Ég á afmæli á föstudaginn og í tilefni af því verður afmæli hérna um kvöldið. Endilega kíkjið við. Hafið bara samband við mig um frekari upplýsingar. Tek það samt fram að ég vil ekkert áfengi í húsið:)

En ég ætla að fara að koma mér í sturtu og fleirra þar sem að ég er að fara í klippingu á eftir, jeij:)

Hafið það gott og farið vel með ykkur! Elska ykkur öll=* 


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 00:27:23 / hjordislitla

Cause you can't jump the track, we're like cars on a cable,And life's like an hourglass, glued to the table.No one can find the rewind button, boys,So cradle your head in your hands...

fallegt lag...

Hef hingað til ekki getað bloggað í langan tíma vegna bilunar í stjórnkerfinu...

Lítið að frétta nema allt fáránlega mikið að gera í skólanu, ekki nema von þegar maður er búinn að vera svona mikið lasinn. Fyrra sýklalyfið virkaði ekkert svo að ég er komin á eitthvað annað núna. Vonandi að það virki eitthvað.
Hef uppskorið handónýtan maga á þessum sýklalyfjum. Ekki gott það. Hefu amk hrjáð mig þannig að ég hef varla getað lært. Ekki sniðugt. En vonandi er það að lagast með nýja sýklalyfinu. Var víst síðan að taka annað lyf með gamla sýklalyfinu sem að maður má ekki taka. Læknirinn var ekkert að minnast á að ég mætti ekki taka þessi tvö lyf saman. Vesen á læknum alltaf hreint!

Ég á afmæli eftir allt of stuttan tíma að mínu mati því að ég tengi afmælið mitt við það að prófin eru að byrja. Semsagt ekki margir dagar í fyrsta prófið. En það segir mér líka að það styttist í jól og frí þar sem að ég get lesið það sem að ég vil og sofið nóg og svona. Mikið hlakka ég til!

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Þar að fara að læra eða sofa. Sé til hverju ég nenni eftir smá stund.

Ég setti inn í aðalvalmyndina smá svona sætt... Mig langar í svona=)

Annars bara ást á ykkur öll=* Guð geymi ykkur og farið varlega í prófkvíðann!=* 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 15:18:20 / hjordislitla

I'm so into you now, I wanna be more than a friend to you now

þvílíkt stuð það er að vera ég. Ég er núna lasin heima. Var lasin á föstudaginn og hélt síðan að ég væri orðin frísk á laugardaginn svo að ég skellti mér til að hjálpa til í Jól í Skókassa og svo í afmæli um kvöldið. Ekki var það mjög sniðugt því að í gær lá ég bara og komst ekki í skólann í dag vegna veikinda. ýkt stuð.

Seinast bloggaði ég til að dreifa huganum frá stressi. Var á leiðinni í félagsfræðipróf sem að ég var svo hrædd fyrir. Vegna stress þá lokaðist ég í prófinu og mundi ekki eitthvað sem að ég var búin að læra utanaf... En ég náði prófinu samt með bara sæmilegri einkunn. Ekki kannski þeirri bestu, en sæmilegri þó.

Átti að fara í munnlegt spænskupróf í morgun en komst ekki vegna veikinda, á enþá eftir að fá svar hvort að ég fái ekki að taka það á miðvikudaginn. Svo í næstu viku þá fer ég í munnlegt dönskupróf sem að ég hef ekki minnstu áhyggjur af. Elska dönskupróf... Er nánast aldrei stressuð fyrir þau, sem er ágætt.

Ég var að bæta inn tenglum... PostSecret.... Mæli með þessari síðu!

Eins og er hef ég ekki hugmynd um hvað ég get bloggað um enda lítið að gerast hjá mér annað en að liggja uppi í rúmi. Er búin að horfa á ágætismag af bíómyndum seinustu daga. Held samt að þetta slái ekki metið þegar að ég var með einkirningasótt, held þær hafi verið fleirri þá:P

En Guð geymi ykkur fallega fólk og farið vel með ykkur:)
Elska ykkur öll,
Hjördís


» 14 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 23:20:10 / hjordislitla

Ég ætla að verða eins og Britney Spears, ég ætla að verða eins og hún!

Þvílík snilld sem að þetta lag er! Mæli með því ef að þið hafið ekki heyrt það! Ég glotti ALLTAF þegar ég heyri það!

En ég ætla nú ekki að blogga um þetta lag:P Núna á ég að vera að læra. Er að fara í próf á morgun sem að ég þarf að læra viðbjóðslega mikið fyrir svo að ég býst við því að vera lærandi í alla nótt þar sem að seinustu dagar hjá mér hafa verið mjög uppteknir.

Í seinasta bloggi var ég að tala um að það ég hefði misst metnaðinn. En á mánudaginn komst ég að því að þetta borgar sig, ég fékk amk 8 fyrir heimildaritgerð (sem ég ætla samt að skila aftur og fá hærra fyrir:P) og 9 fyrir ritgerðarpróf úr kjörbók og 9 fyrir annað próf úr kjörbók! Er ekkert smá stollt af mér og ætla því að halda áfram að leggja hart að mér:)

En aftur á móti núna þá get ég því miður lítið lært. Stressið nær því miður yfirhöndinni hjá mér of oft. Er í augnablikinu með krampa í maganum vegna stress, sem gerir það að verkum að ég næ lítið að læra:/ Ekki gott! En ég ætla að reyna að komast yfir það og fara svo að læra:)

Því ætla ég að segja við ykkur kæra fólk, ef að þið komist hjá því að vera stressuð, njótið þess þá! Stress er viðbjóður sem að hrjáir mann hrillilega! Allavega gerir það að verkum hjá mér að ég læri allar nætur, er alltaf með magaverki og svo framvegis. Í augnablikinu er ég einmitt komin með óþol gegn hveiti og unnum kjötvörum ásamt auðvitað mjólk og allt það sem að var fyrir:/ Svo að þið getið ímyndað ykkur hversu erfitt það er fyrir mig að finna mér eitthvað að borða núna!

Var að koma af söngvakeppni FB! Þar voru góðvinir mínir að keppa og stóðu þau sig öll rosalega vel og ég er svooo stoll af því að þekkja þau! Þess má geta að í augnablikinu þekki ég semsagt ekki Boga:P hehehe.... ::lol:

En núna er ég búin að ná að dreifa huganum smá svo að ég ætla að reyna að læra áður en þreytan tekur öll völd! Ef þið lumið á glósur úr 4 kafla í félagsfræði 203 (bókin heitir kenningar og samfélag) þá eru þær vel þegnar:/:)

En bless í bili og hafið það gott:) Guð geymi ykkur! 


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 17:12:16 / hjordislitla

I wanna dance with you, I see a sky full of the stars that change our minds, and lead us back to a world we would not face

Ég var að skoða atvinnuauglýsningar á mbl.is áðan til að athuga hvort að ég ditti inn á einhverja sniðuga vinnu sem að henntaði þeim tíma sem að ég gæti unnið á, sem er reyndar enginn- en ég þarf vinnu. Ég fann ekkert í þeim dúr.
Ég hinsvegar sá að það var verið að auglýsa eftir au-pair til Danmerkur. þá varð mér strax hugsað hversu hrikalega mikið mig langar að fara til Danmerkur. Þar er ég miklu afslappaðari og ekki nærrum því eins stressuð og hérna heima.
Núna í augnablikinu er ég í skóla sem að ég ætla að standa mig vel í. Ég þarf að hafa fyrir náminu mínu og ég veit það. Og ég hef ákveðinn standard fyrir mig sem að ég vil ná. Ég vil ekki fá of lágar einkunnir og helst enga undir 7. Þetta gerir það að verkum að ég er alltaf lærandi. Eina sem að ég geri fyrir utan skólann er að vera foringji í MD í Lindasókn.
En samt sem áður þá er ég að farast úr stressi og ég er svo hrædd um að bregðast mínum eigin væntingum. Þetta gerir það að verkum að sá svefn sem að ég hef fengið seinustu vikur hefur samt ekki fært mér hvíld, sem gerir það að verkum að ég er þreytt.
Mér er alltaf sagt reglulega að ég eigi að hugsa um sjálfa mig. En ég geri það samt ekki. Þessa helgi til dæmis er ég lítið sem ekkert búin að læra vegna þess að ég hef ekki haft einbeitingu í það. Sem er slæmt þar sem að það er mikið að læra fyrir morgundaginn hjá mér. En í staðinn hef ég samt ekki hugsað um sjálfa mig. Ég hugsaði ekkert út í hvað ég ætti að vera að gera í staðin fyrir að læra.
Ég hef margt sem að ég ætti að vera að hugsa um. En ég reyni samt að forðast það. Og það hjálpar mér ekkert. Myndar bara stress. Ég hef margt að tala um, en ég tala samt ekki um það. það myndar líka stress. Hugsun mín hefur verið þessa vikuna: ,,Það eru 6 vikur eftir að skólanum, ég hlýt að geta hugsað um mig bara þegar að þessi önn er búin. Ég hlýt að geta talað þegar önnin er búin" og svo framvegis... Það er að sjálfsögðu ekki rétt hugsun, því að þetta gerir það að verkum að mér mun ekki líða vel restina af önninni og þegar önnin klárast mun ég líklegast ekki sinna þessu heldur þá.
Þessa dagana þarf ég mikið á því að halda að heyra að ég sé dugleg, en ég man ekki eftir að hafa heyrt það lengi. Ég þarf á því að halda að einhver hvetji mig til þess að tala út. Útskýra hvað ég vil og hvernig og allt það.

En nóg um þetta. Í seinasta bloggi talaði ég um frænda vinkonu minnar. Hann semsagt lennti í bílslysi og það kom gat á ósæðina hans og fleirra mjög slæmt. En bænin bjargaði í þetta skiptið og gerði kraftaverk! Ég þakka öll kommentin sem að komu á bloggið. Eitt þeirra sagði að bænin virkar ekki alltaf. En það er ekki rétt, því að bænin virkar alltaf. Bara kannski ekki alltaf á þann hátt sem að við viljum að hún virki. Því má ekki gleyma að allt sem að gerist er vilji Guðs og við fáum honum því miður ekki alltaf breytt.

En núna ætla ég að hætta þessu bloggstandi. Ég þarf að fara að læra.
Guð geymi ykkur og hafið það gott:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 01:19:06 / hjordislitla

One by one, Only the good die young.

Ef að það er eitthvað sem að hefur alltaf hrætt mig og mun líklegast alltaf hræða mig þá er það dauðinn. Ég veit að sagt er að maður eigi ekki að vera hræddur við hann, en einhverra hluta vegna get ég ekki losnað við þessa hræðslu. Ég er alltaf hrædd um að missa einhvern nákominn mér eða að einfaldlega ég sjálf deyji.
     Ég hef einu sinni lennt í því að einhver sem að var mér mjög nákominn dó. En þá var ég svo ung að ég hafði ekkert vit á því sem að var að gerast. En síðar, þegar ég var orðin eldri hafði það auðvitað mikil áhrif á mig. En ég get samt ekki ýmindað mér sársaukann við það að missa einhvern nákominn sér.
     Núna í kvöld fékk ég þær fréttir að frændi vinkonu minnar væri í lífshættu. Mér leið strax hrikalega illa. Ég veit ekkert hvernig ég á að bera mig að því þegar að einhver sem er nákominn mínum nákomnu er í þessari stöðu. Ég hef aldrei lennt í þessu og veit því ekki hvernig ég vil að sé komið fram við mig. Þá veit ég ekkert hvernig ég á að koma fram við aðra þegar að þeir eru í þessari stöðu. Eina sem að ég veit að ég get gert er að hafa aðillann í bænum mínum og boðið alla mína hjálp og allan minn stuðning. Kannski er ekkert meira hægt að bjóða.

Í þetta skiptið, þegar að vinkona mín sagði mér að frændi hennar væri í þessari stöðu, bað hún mig strax að biðja með sér. Og ég komst að því að það er hægt að biðja saman í gegnum msn. Og ég mundi strax eftir "skammstöfun" sem að hefur fylgt mér í nokkur ár sem er
P=pray
U=untill
S=something
H=happens

Bænin gerir kraftaverk. Og ég þekki það af eigin reynslu og annara reynslu. Þess vegna er það mikilvægasta sem að við gerum að biðja. Ég veit það að ég er rosalega lélegt í því að biðja. En ég hugsa það samt þannig að þegar að ég vakna þá segi ég: ,,Góðan daginn Guð! Núna máttu nota mig í dag og gerðu það sem að ég hugsa, segi og framkvæmi í dag að vitnisburði þínum og að það megi skila sér til annarra í gegnum mig" og svo þegar að ég fer að sofa þá segi ég: ,,Góða nótt Guð! Takk fyrir daginn, fyrirgefðu það sem að ég gerði rangt í dag. Vonandi verður dagurinn á morgun með minni syndum".

Kannski finnst öllum þessi hugsun ekki rétt. En ég hugsa það samt þannig að frá því að ég vakna og þangað til ég fer að sofa þá er allt sem að ég geri bæn til Guðs.

En núna er vinkona mín efst í mínum huga. Ég hugsa mikið til hennar og vildi að ég gæti tekið að minnsta kosti hluta af þjáningum hennar á mig. Því að þetta er rosalega erfitt. Og það er að sjálfsögðu alltaf erfitt að hugsa til þess að einhverjum líði illa. En þetta er því miður hluti af lífinu og maður verður að ganga í gegnum þetta. Vinkona mín er efst í huga mér núna og því í bænum mínum næstu daga. Eins frændi hennar sem er í lífshættu. Og ég veit að það er Guðs vilji, hvað sem að gerist.

Elsku vinkona mín! Mér þykir óendanlega vænt um þig! Ég vildi að ég gæti tekið þjáningar þínar en aðeins Hann getur það. Þú ert í mínum bænum og ég er til staðar hvenær sem er ef að þú þarft á því að halda! Guð geymi þig! 


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 10:20:08 / hjordislitla

Be Prepared

Jæja... kominn tími á smá blogg fyrst að ég hef svona ögn af tíma til þess að blogga fyrir ykkur!

Allt brjálað að gera þessa dagana hjá mér. Ég var lasin 3 daga í seinustu viku þannig að ég missti 3 daga úr skólanum. Ekki gott það! Og núna er allt á 110% í skólanum. Ritgerðarskil í gær, próf í dag, próf á morgun, ritgerðarskil á morgun, Ritgerðarskil á fimmtudaginn/föstudaginn og svo framvegis. Semsagt ef að ykkur langar til að hafa tíma til að hitta mig verðuru að komast að því hvar ég er hvenær og hitta mig þar. Því að eins og er er ekki hægt að koma meiru inni í stundaskránna mína! :p

Ég kom í sögu í gær eftir að hafa misst af 2 seinustu tímum og komst að því að það væri próf í þessu fagi í dag. Og ég neita því ekki að stressið er allveg ágætlega mikið! Er núna í eyðu til 13.20 og er niðri í matsal núna á leiðinni upp á bókasafn til að læra.

Ég fór í gær að borða á Vitabar með Ómari, Hjalta og vini þeirra. Eftir það fattaði ég að það væri bænastund svo að ég ákvað að skella mér þangað.... semsagt missti af því að læra í allt gærkvöld:p Ekki sniðugt það! En.... Ég læri bara í eyðunni minni í staðin.

Um helgina var fínt. Skellti mér smá út á föstudagskvöldinu. Svo á laugardaginn fór ég á KSS fund og eitthvað. Á sunnudaginn brunaði ég svo til Keflavíkur í  kveðjuboð til Bryndísar þar sem að hún er að fara til Englands í biblíuskóla. öfunda hana svo mikið að vera að fara út. Langar mjög mikið bara aftur til Danmerkur. En... Eftir vonandi bara 2 ár mun ég fara þangað:) Can't Wait!

En núna ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili. Ákvað að blogga svona fyrst ég hafði smá tíma aflögu... Býst ekki við að blogga mikið á næstunni!
Hafið það allavega gott og hugsið um sjálf ykkur og látið ykkur þykja vænt um náungann;)
Love, Hjördís


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 20:12:05 / hjordislitla

I don't care if monday's black, tuesday wednesday heart attack, thursday never looking back, it's friday I'm in love!

Jæja, það var farið að biðja mig um nýtt blogg svo að ég verð að blogga fyrir ykkur:)

Ég er búin að vera svo svakalega hugmyndalaus um hluti til að blogga eftir að ég kom til Íslands. Allt einhver hundleiðinleg blogg um það hvað ég er að bralla alla daga. Ég hugsa að ég kenni annríkinu um. Hef ekki tíma til að hugsa mikið og því hafa ekki komið nein skemmtileg blogg!

Annars er voðalega lítið annað að gerast hjá mér þessa dagana en skólinn. Er að læra alla daga og eitthvað bara. Það er ágætt, þó svo að ekki öllum finnist sniðugt hversu mikið ég sé að læra:P En það er þeirra mál:p Þeir verða bara að sætta sig við að það er mikið að gera í skólanum mínum:D

Ég skellti mér reyndar á ball á fimmtudaginn. Skemmti mér vel þar þrátt fyrir að hafa verið yfirgefin:P hehe! Hitti fullt af fólki samt og skemmti mér bara mjög vel!
Á laugardaginn fór ég fyrst á Kynningafund KSS sem var mjög skemmtilegur og skellti mér svo í afmælisboð til Gunna á Selfoss. Það var frekar sérstakt partý, en samt sem áður ágætt. Skondið að vissu leiti, sérstaklega þegar að ég fór að láta strákana horfa á ýmislegt í sjónvarpinu og fleirra. Ekki meira um það:P

Annars er það lítið annað sem að kemst að hjá mér þessa dagana. Læri bara helling og sef og borða þess á milli;)

Núna er ég heima að reyna að koma mér í það að fara að læra... Gengur hægt þar sem að ég er eitthvað slöpp. Eins gott að þetta ónæmiskerfi mitt fari að lagast eitthvað! Búið að vera bilað síðan ég fékk einkirningasóttina í 10. bekk enda er ég búin að vera meira og minna veik síðan þá!

 

Mér finnst það ýkt fyndið, að núna er ég búin að vera á Íslandi í ekki nema 2 mánuði og ég er samt komin inn í allt þetta brjálæði hérna heima! Eða kannski ekki allt, en hluta af því! Ég er með svo svakalega mikið að gera að ég hef varla tíma til að anda og ég er meira að segja komin að hluta til inn í þetta ógeðis lífsgæðakapphlaup. Mikið langar mig til Danmerkur aftur! Ef einhvern langar að bjóða mér til Danmerkur þá myndi ég amk ekki mótmæla því! Sakna líka Önnunnar minnar svoooo mikið! Hún er líklega eina sem að ég þekki í dk sem að er með svona fáránlega mikið að gera:P 

Ég held ég hafi ekki meira að blogga í þetta ,,skemmtilega" blogg meira... Hafið það bara gott! Ekki gleyma að hugsa um ykkur sjálf og gefa ykkur tíma í að njóta lífsins:)

-hjordis 


» 16 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 16:03:51 / hjordislitla

Show must go on!

Jæja, Verður maður ekki að blogga smá fyrir ykkur lömbin mín?

Ég er semsagt komin með bílpróf! Fékk það í gær og er búin að keyra stollt út um allt eftir það:)

Gekk mjög vel í bílprófinu, fékk mjög góðan prófdómara! Var að sjálfsögðu stressuð (ef ég hefði ekki verið stressuð þá hefði ég allt eins getað verið kongurinn í kína!!!) En mér gekk samt mjög vel! Fékk bara 2 refsistig og þau voru í kjánalegri kanntinum. Ég er allavega búin að brillera í bílprófinu og brillera núna sem bílstjóri á bílnum mínum!

Og ég er búin að komast að því að það er satt það sem að Bryndís sagði um daginn. Það er líka fyrsta bílaást um fyrsta bíl stelpna! Þetta er ekki bara hjá strákum!!! Mér þykir allavega rosalega vænt um þennan bíl þó svo að hann sé enþá bæði rauður og grænn:P

Í kvöld er kss-fundur. Ég skelli mér að sjálfsögðu þangað. 

En þangað til þarf ég að læra, taka til í húsinu, læra miklu meira, sturta mig og gera mig til og fleirra. hehe:)

En ég er að spá í að skella mér í að fara að læra eða taka til. Ekki mikill tími í kss fund svo að það er betra að koma sér í gang;)

Guð geymi ykkur sæta fólk! Mér þykir ótrúlega vænt um ykkur.

Og Anna Karen, ef þú lest þetta, ég elska þig mest og get ekki beðið eftir að við höfum tíma til að spjalla saman! Verðum svo að fara að skipuleggja hvor fer hvert til að hitta hvora aðra!!! Sakna þín endalaust mikið!

Og Dagný, ef að þú lest þetta þá verðum við að fara að gefa okkur tíma í að hittast!!! Við erum hrikalegar í að finna okkur tíma! Svo að þegar að þú kemur frá AK þá berum við saman dagbækur og finnum tíma til að hittast!! Elska þig og sakna þín ástin mín!

-hjördís 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
RSS tengill